Matreiðslumannadeild Slow Food Samtakanna kemur saman í Toskana 200 matreiðslumenn frá 7 mismunandi löndum til að berjast gegn veðurfarsbreytingum
18 Oct 2017 | Icelandic
Önnur aðalsamkoma matreiðslumannadeildar Slow Food Samtakanna fór fram 15. og 16. október sl. í Montecatini Terme (Toskana). Þar tóku þátt tvö hundruð matreiðslumenn frá sjö löndum (Albaníu, Rússlandi, Ítalíu, Íslandi, Belgíu, Frakklandi og Hollandi).
Aðalumfjöllunarefni samkomunnar að þessu sinni voru veðurfarsbreytingar og hvernig matreiðslumenn geta lagt hönd á plóg til að vinna gegn þeim.
Slow Food Samtökin hafa hrundið af stað alþjóðlegu átaki til að styðja verkefni sem berjast gegn veðurfarsbreytingum. Matreiðslumannadeild Slow Food Samtakanna verður styrktaraðili.
Matvælaframleiðsla er ein af helstu orsökum veðurfarsbreytinga, þar sem hún stendur bak við 21% gróðurhúsalofttegunda. Um er að ræða iðnvæðingu á matvælaframleiðsluferlinu sem felur í sér aukna notkun efna og véla, vatns og ekki síst val á dýrum og fræjum svo að þau geti gefið mest af sér. Þetta ferli er stærsta orsök á dauða líffjölbreytni heimsins.
Slow Food Hreyfining standa gegn þessu ferli. Jafnframt styðja þau bændur sem framleiða á sjálfbæran hátt og samkvæmt aldagömlum aðferðum, svo að þeim verði ekki gleymt.
Í Slow Food Samtökunum eru meira en 800 matreiðslumenn frá 20 löndum sem styðja litla framleiðendur með því að nota á hverjum degi náttúruleg hráefni úr Asknum og Bragðörkinni, ásamt „góðum, hreinum og réttum“ grænmeti, ávöxtum og ostum sem eru framleidd hver í sínu héraði.
Á hverjum degi koma matreiðslumenn samtakanna Slow Food herferðir á framfæri: Herferð gegn veðurfarsbreytingum, matarsóun, erfðabreyttum lífverum, ofneyslu á kjöti og líffjölbreytni í hag. Síðast en ekki síst: Matreiðslumenn samtakanna ferðast um heim allan, taka þátt í ýmsum viðburðum og elda saman. Á síðastliðnum sunnudegi elduðu matreiðslumenn frá Albaníu, Rússlandi, Íslandi og Belgíu saman fyrir kóllega sína í Montecatini. Á sama dag var einnig haldinn matarmarkaður þar sem 50 ítalskir framleiðendur hafa komið með um 500 verndaðar matvörur sem ber að bjarga.
Fulltrúi Íslandsdeildar Food Slow Samtakanna var Gísli Matthías Auðunsson, matreiðslumaður hjá „Slippnum“ í Vestmannaeyjum. Hann segir: „Ég kem frá lítilli eyju með einungis 4000 íbúa og það er því einfalt að þekkingu týnist. Við skulum gera okkar besta til að varðveita þessa þekkingu. Ég vinn alltaf til að ná þessu markmiði með því að tala sem best um mat okkar og fólk sem framleiðir hann, t.d. villtu kryddjurtirnar sem við notum til að elda og litlu framleiðendurna sem við styðjum.“
Frekari upplýsingar um Slow Food matreiðslumannadeildir í heiminum má nálgast á https://www.fondazioneslowfood.com/en/what-we-do/slow-food-chefs-alliance/
Frekari upplýsingar:
Slow Food International Press Office
Paola Nano, Giulia Capaldi
[email protected] – Twitter: @SlowFoodPress
Change the world through food
Learn how you can restore ecosystems, communities and your own health with our RegenerAction Toolkit.